Refund policy
Skilafrestur:
Neytandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í upprunalegu ástandi (allir miðar ennþá á flíkinni, enginn merki um notkun og engin líkams &/eða ilmvatnslykt). Fresturinn byrjar að líða þegar kaup eru gerð. Sé vöru skilað innan 3 daga er boðið upp á endurgreiðslu en annars er í boði inneign eða skipti í aðra vöru ef skilað er innan 14 daga. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Verðmæti er sú upphæð sem greidd var þegar varan var keypt. Ef vara er keypt með afslætti, þá gildir það lækkaða verð sem verðmæti vörunnar. Kostnaður við að skila vörunni, s.s. sendingarkostnaður, greiðist af neytanda. Neytandi er sá sem skráður er sem slíkur á reikningi.
Vinsamlegast athugið að útsöluvörur eru seldar með takmörkuðum réttindum um skil. Það er því ekki hægt að skila útsöluvörum. Það er hægt að skipta útsöluvöru í aðra útsölu vöru innan þriggja daga. Við ráðleggjum viðskiptavinum að skoða vörurnar vandlega áður en kaup eru staðfest.
Ekki er hægt að skipta sundfatnaði ef öryggismiðinn er ekki til staðar. Ekki er hægt að skipta nærfatnaði.
Kaup á lagersöluvörum eru endanleg og fást ekki skilað.
Hægt er að skipta pre-loved vörum í aðra pre-loved vöru innan 14 daga. Pre-loved vörur eru ekki endurgreiddar.
Galli:
Ef neytandi kaupir gallaða(r) vöru(r) í vefverslun FOU22 er boðið upp á viðgerð, nýja(r) vöru(r), afslátt eða endurgreiðslu kaupverðs. Það fer eftir atvikum og eðli gallans hvaða leið er valin hverju sinni. Ef varan er gölluð eða í ófullnægjandi ástandi, vinsamlegast hafið samband við okkur innan 14 daga frá kaupum. Um rétt neytanda, þ.e.a.s. einstaklingar sem versla í vefverslun FOU22, eigi í þágu atvinnurekstrar, vegna galla vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003. Varðandi rétt fyrirtækja og einstaklinga sem versla í vefverslun FOU22 í þágu atvinnurekstrar vísast til laga um lausafjárkaup nr. 50/2000.
